Þið heyrðuð það rétt! Súkkulaðibitasmáköku-terta, með kökudeigskremi, karamellufrosting og púðursykurssmjörkremi! Gerist ekki mikið dásamlegra og sætari en þessi hér!
Ég mæli hiklaust með þessari fyrir næsta saumaklúbb, afmæli eða bara með kaffinu!
Uppskriftin er í nokkrum liðum og það er alveg hægt að gera smákökubotnana og kökudeigið deginum fyrr - en ég mæli með því að gera smjörkremið og karamellufrosting-ið sama dag og þið setjið kökuna saman.
Hér er uppskriftin:
Smákökubotnar:
250 gr smjör við stofuhita
150 ml sykur
150 ml púðursykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk salt
3 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
1 msk maizenamjöl
Smá mjólk
½ bolli rjómasúkkulaðidropar
Smákökubotnar aðferð:
Þessi kaka er stór og dugar fyrir marga.
Stillið ofninn á 170c
Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur í hrærivél
Bætið eggjunum útí, einu í einu og hrærið á milli.
Bætið vanilludropum út í og hrærið.
Blandið þurrefnunum saman í aðra skál.
Með hrærivélina stillta á lágan hraða, bætið þurrefnunum út í hægt og rólega.
Bætið við smá mjólk (ca 1 dl) þannig að deigið sé örlítið þykkara en venjulegt skúffukökudeig.
Bætið súkkulaðidropunum út í og hrærið lítið (gott að hræra með sleikju)
Notið nú teskeið eða hálfa matskeið (notið mæliskeiðina sjálfa eða eitthvað álíka) til að gera 8 jafnlitlar smákökur (notað til að skreyta) og bakið í 8-10 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar við endann.
Skiptið restinni af deginu í þrjú form sem eru ca 22cm í þvermál. Bakið í 18-20 mínútur.
Leyfið botnunum að kólna vel áður en kökudeigskremið er sett á milli.
Kökudeig:
150gr smjör
150 ml sykur
150 ml púðursykur
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk salt
1 1/2 bolli hveiti
4 msk mjólk
1/2 bolli rjómasúkkulaðidropar
Kökudeig-aðferð:
Smjör, sykur, púðursykur og vanilludropar sett í hrærivél og hrært vel.
Þurrefnunum blandað út í og hrært.
Bætið mjólk út í þannig að kökudeigið sé ca eins þykkt og smjörkrem (Sjá myndband)
Bætið súkkulaðidropunum út í og hrærið lítið (gott að nota sleikju)
Setið fyrsta botninn á kökufat og dreifið helmingnum af kökudeiginu á botninn.
Setjið næsta botn ofaná og dreifið seinni helmingnum af kökudeiginu á þann botn.
Þriðji botninn fer svo ofan á kökudeigið.
Karamellufrosting:
2 msk smjör
3 msk rjómi
1/2 bolli púðursykur
-
1/2 tsk vanilludopar
1/4 tsk salt
-
1 bolli flórsykur
Karamellufrosting – aðferð:
Smjör, rjómi og púðursykur sett í lítinn pott og suðan látin koma upp.
Haldið suðunni í 1 mínútu og hrærið stanslaust á meðan.
Slökkvið undir og takið af hellunni.
Bætð vanilludropum og salti út í heita blönduna.
Setjið í hrærivélarskál.
Flórsykrinum er svo bætt út í skálina og hrært örlítið.
Hér þarf að hafa hraðar hendur því þetta harðnar hratt.
Hellið Karamellunni yfir kökuna og leyfið henni að leka út af kökunni.
Púðursykurssmjörkrem:
50 ml púðursykur
2 msk smjör
2 msk rjómi
-
100gr smjör
1 1/2 bolli flór sykur
Púðursykurssmjörkrem:
Púðursykur, smjör og rjómi sett í pott og suðan látin koma upp.
Haldið suðunni í 1 mínútu og hrærið stanslaust á meðan.
Takið af hitanum og slökkvið undir.
Leyfið blöndunni að kólna vel
Þeytið 100gr af smjörinu í hrærivél á meðan þar til það verður létt og ljóst
-
Bætið blöndunni hægt í mjórri bunu út í og hrærið á meðan (blandan verður að vera orðin nægilega köld svo hún bræði ekki smjörið)
Flórsykrinum bætt út í, ½ bolla í einu.
Hrært vel þar til smjörkremið er orðið létt og ljóst.
Smjörkremið er svo sett í sprautupoka og 8 toppar eru settir með jöfnu millibili á kökuna.
Síðan er ein smákaka sett á hvern topp og þá er kakan klár!
Agnes Emma litli aðstoðarbakarinn minn fyglist spennt með mömmu sinni.
Svo er bara að njóta með bestu lyst!